Stirnir Kjartansson
BA Nýmiðlatónsmíðar
Stirnir Kjartansson er gítarleikari, lagasmiður, tónskáld o.fl. Hann er yfirleitt kenndur við senuna í kringum listasamlagið post-dreifingu og hefur hann verið í ótal mörgum hljómsveitum í gegnum árin og spilað og unnið með fjölbreyttri flóru listafólks.
Seinustu árin hefur Stirnir rannsakað þau akústísku fyrirbæri sem kunna að birtast í háværum og ómstríðum tónlistarlegum aðstæðum í formi stórsveita sem samanstanda af mörgum uppmögnuðum rafmagnsgítörum.
Í tónlistarsköpun sinni leggur Stirnir mikla áherslu á samstillingu og jafnvægi hljóðs með hjálp ómstríðu, fjölbreytileika og huglægs eðlis skynfæra okkar.
Flytjendur
Stirnir Kjartansson, gítarleikari og stjórnandi.
Bjarni Daníel Þorvaldsson, gítarleikari.
Hugi Kjartansson, gítarleikari.
Masaya Ozaki, gítarleikari.
Ronja Jóhannsdóttir, gítarleikari.
Vigfús Þór Eiríksson, gítarleikari.
Ægir Sindri Bjarnason, trommuleikari.
