Salurinn er fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins. Hann var tekinn í notkun 2. janúar 1999. Tónlistarhús Kópavogs er hluti af menningarmiðstöð bæjarins sem stendur á Borgarholtinu við hlið Gerðarsafns og í nágrenni Kópavogskirkju, en hún er eitt helsta tákn bæjarfélagsins.
Frá því að Salurinn var tekinn í notkun hafa verið haldnir að meðaltali tvennir tónleikar í viku, fjöldi ráðstefna af ýmsu tagi, námskeið, verðlaunaafhendingar, alþjóðlegt skákmót, píanókeppni, afmælisveislur, fermingar, brúðkaup og svo mætti áfram telja.
Salurinn er staðsettur í Hamraborg 6 og eru mjög góðar almenningssamgöngur í boði til að komast í Salinn. Einnig er boðið upp á gjaldfrjáls bílastæði fyrir gesti Salarins.
Í Salnum er sex hjólastólastæði og ljómandi aðgengi fyrir hreyfihamlaða.