Lúllabæ – Sigga Eyrún útgáfutónleikar

Sigga Eyrún fagnar útgáfu annarrar sólóplötu sinnar. Í þetta sinn er um að ræða frumsamin lög eftir Karl Olgeirsson og önnur falleg lög sem þau hafa sungið fyrir börnin okkar og vilja deila með heiminum. Platan kemur út á vínyl og geisladisk og verður að finna á helstu streymisveitum. Siggu Eyrúnu og Kalla Olgeirs hafði […]

Söngvar úr norðri og suðri

Föstudaginn 26. september næstkomandi munu Kristinn Sigmundsson, Kolbeinn Ketilsson halda tónleika í Salnum. Á dagskránni verða íslensk og erlend sönglög úr ýmsum áttum eftir Sigvalda Kaldalóns, Eyþór Stefánsson, Franz Schubert, Hugo Wolf, Francesco Paolo Tosti og Richard Wagner. Kristinn Sigmundsson hefur haft söng að aðalstarfi síðan 1984. Fyrst hér heima, en frá árinu 1989 hefur […]

K.óla – í Salnum

K.óla (IS) er sólóverkefni Katrínar Helgu Ólafsdóttur. Hún hefur komið fram undir því nafni síðan 2017, bæði með hljómsveit og án. Hún hefur samið popplög og tónlist fyrir stuttmyndir og leikhús, saumað bækur, samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og gert teiknimynda myndbönd. Hún hefur einnig samið nútímalegri-klassísk verk, bæði fyrir klassísk hljóðfæri og aðra hluti […]

17. júní í Kópavogi

Haldið verður upp á 17. júní með glæsibrag í Kópavogi og er boðið upp á dagskrá á nokkrum stöðum í bænum. Skemmtidagskrá er bæði á Rútstúni og við Versali frá tvö til fjögur en leiktæki og hoppukastalar opna klukkan tólf. Einnig er dagskrá við Menningarhús bæjarins.  Dagskrá 17. júní í Kópavogi 10.00: Kópavogsvöllur: 17.júní hlaup frjálsíþróttadeildar […]

Hennar hljómur

Fluttur verður hinn margrómaði og áhrifamikli ljóðaflokkur Frauenliebe und -leben eftir Robert Schumann við ljóð Adalbert von Chamisso, í sviðsetningu Snæfríðar Sólar Gunnarsdóttur. Verkið er eitt af þekktustu ljóðaflokkum Schumanns og er gjarnan flutt um heim allan. Með því að sviðsetja verkið, stígum við einu skrefi nær áheyrendum og bjóðum þeim þar með að upplifa […]

Himinn & jörð | Dægurlagaperlur Gunnars Þórðarsonar

Gunnar Þórðarson er einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar fyrr og síðar. Hann hefur samið yfir 800 lög og hefur auk þess samið tónlist fyrir kvikmyndir og söngleiki. Einnig hefur hann útsett og stjórnað upptökum á fjölda hljómdiska. Á síðustu árum hefur Gunnar í vaxandi mæli fengist við klassíska tónlist og hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands flutt nokkur verka […]

Daði Freyr | Söngvaskáld

Tónleikaröðin Söngvaskáld hefur sitt þriðja starfsár í haust en hún er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila sín lög og segja frá tilurð þeirra. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar […]

Bjarni Daníel | Söngvaskáld

DIT-hugmyndafræðin (Do-It-Together eða Gerum-það-saman) hefur verið ráðandi straumur í grasrót reykvísku tónlistarsenunnar í bráðum tíu ár, ekki síst fyrir tilstilli listasamlagsins Post-dreifingar sem fæddist til ljóss og lífs 2017. Allar götur síðan hefur tónlistarmaðurinn Bjarni Daníel verið einn helsti kyndilberi þessarar hreyfingar, jöfnum höndum sem lagahöfundur og söngvari hljómsveita á borð við Supersport!, Skoffín og […]

Árný Margrét | Söngvaskáld

Tónleikaröðin Söngvaskáld hefur sitt þriðja starfsár í haust en hún er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila sín lög og segja frá tilurð þeirra. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar […]

Un dur og formerki

Herdís Anna Jónasdóttir, sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari frumflytja tvo splunkunýja ljóðaflokka sem og önnur sönglög, þar af nokkur í nýjum útsetningum, eftir tónskáldin Halldór Smárason og Finn Karlsson. Ljóðaflokkurinn Lítið að frétta er saminn af Halldóri Smárasyni sérstaklega fyrir Herdísi Önnu Jónasdóttur og tileinkaður móður hans. Texti verksins er fenginn úr tölvupóstsamskiptum þeirra […]