Fundir & Ráðstefnur

Í Salnum er frábær hljómburður og umhverfið hlýlegt. Góður tæknibúnaður hússins og aðstoð við tæknimál tryggir að fundir gangi smurt fyrir sig. Salurinn er vel útbúinn góðum tæknibúnaði og tæknilausnum sem fullnægja flestum þörfum viðburðarhaldara. Einnig er boðið upp á aðstoð við streymislausnir og upptökur.

Í Salnum lofum við persónulegri og góðri þjónustu. Við aðstoðum við skipulagningu og undirbúning til að tryggja að viðburður gangi vel fyrir sig. Teymi okkar hefur mikla reynslu að viðburðahaldi og getur ráðlagt við útfærslu og framkvæmd viðburðar.

Veitingaþjónusta Krónikunnar er á staðnum og annast bæði mat og drykki á viðburðum í húsinu. Krónikan er veitingastaður í Gerðarsafni, við hlið Salarins. Boðið er upp á ýmsar lausnir fyrir fjölbreyttar tegundir viðburða. Bæði er hægt að fá pinnamat og litla bita, samlokur og salöt eða fullar máltíðir. Möguleikar á lausnum við mat fer eftir fjölda gesta en alltaf er unnið eftir fremsta megni að mæta þörfum viðburðarhaldara til að tryggja góða upplifun.

Salurinn er val staðsettur miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Við húsið er mikið af fríum bílastæðum og almenningssamgöngur eru þægilegar á staðinn þar sem strætóstoppisstöðin Hamraborg er við húsið. Einnig eru góðar hjóla- og gönguleiðir sem liggja að húsinu hvaðanæfa að á Höfuðborgarsvæðinu.