Góðan daginn, faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað.
Hvaða afleiðingar hefur það fyrir einstaklinga að alast upp í samfélagi sem er sniðið að öðrum en þeim? Hvernig er það að tilheyra aldrei að fullu heldur eiga alltaf á hættu að þurfa að verja sig eða berjast fyrir tilverurétti sínum?
Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnortna.
Höfundarnir eru hinsegin fólk sem öll ólust upp á landsbyggðinni, Bjarni Snæbjörnsson leikari frá Tálknafirði, Axel Ingi Árnason tónskáld úr Eyjafjarðarsveit og Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri frá Hrísey. Í sköpunarferli sýningarinnar ræddu höfundar jafnframt við ótal hinsegin manneskjur og stóðu reglulega fyrir opnum leiklestrum og kynningum í tengslum við Hinsegin daga og í samstarfi við Samtökin ‘78.
Höfundar: Bjarni Snæbjörnsson og Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikstjóri: Gréta Kristín Ómarsdóttir
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson
Stílisti: Eva Signý Berger
Sviðshreyfingar: Cameron Corbett
Framkvæmdastjóri og aðstoðarmaður leikstjóra: Hjalti Vigfússon
Flytjendur: Axel Ingi Árnason og Bjarni Snæbjörnsson
Í nóvember verður öllum 10. bekkingum í Kópavogi boðið að koma á sýninguna Góðan daginn, faggi í Salnum
Kennarar geta skráð bekkina sína í meko@kopavogur.is.