Dan Cassidy Trio & Andrea Gylfadóttir Á lokatónleikum Sumarjazzins leikur nýstofnað tríó skipað þeim Dan Cassidy, Andrési Þór Gunnlaugssyni og Jóni Rafnssyni þekkt jazzlög ásamt ýmsum gullmolum úr heimi dægurtónlistar, í anda fiðluleikaranna Stéphane Grappelli, Didier Lockwood og Svend Asmussen. Sérstakur gestur á tónleikunum verður söngkonan Andrea Gylfadóttir.
Tónleikarnir sem taka eina klukkustund eru í boði Salarins og Lista- og menningarráðs Kópavogs og er aðgangur án endurgjalds.