11. des 20:00 ~ 23. des 15:00

Jólanótt Scrooge

Salurinn
4.900 kr.

Töfrandi jólaævintýri fyrir alla fjölskylduna

Hvað þarf til að bræða hjarta manns sem hefur gleymt því hvernig á að elska?

Í Lundúnum fyrir rúmri öld býr Ebenezer Scrooge, ríkur en afskaplega nískur maður sem hefur litla þolinmæði fyrir jólunum og enn minni fyrir fólkinu í kringum sig.

En á aðfangadagskvöld tekur líf hans óvænta stefnu.

Þegar klukkan slær tólf hefst undarleg og ævintýraleg ferð þar sem fortíð, nútíð og framtíð leiða Scrooge á vit minninga, gleði og þess sem raunverulega skiptir máli.

Jólanótt Scrooge er ný, íslensk leikgerð Níels Thibaud Girerd á hinni sígildu jólasögu Charles Dickens, A Christmas Carol.

Hér lifnar sagan við með leik, söng, tónlist, húmor og töfrum í hlýlegri leiksýningu fyrir alla fjölskylduna.

Saga um einmanaleika og vináttu, missi og von — og þá dásamlegu staðreynd að það er aldrei of seint að breytast.

Flytjendur sýningarinnar eru Vilhjálmur B. Bragason, Bryndís Guðjónsdóttir, Birgitta Birgisdóttir og Oddur Arnþór Jónsson.

Sýningin er um 50 mínútur að lengd.

Frumsýnt 11. desember 2026 í Salnum í Kópavogi.

Dagsetningar

11. des

20:00 ~ 21:00

23. des

14:00 ~ 15:00

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira