Strategíudagurinn
Hinn rómaði Strategíudagur verður haldinn miðvikudaginn 6. september nk. með spennandi viðburði í Salnum, Kópavogi.
Í ár er yfirskriftin “Hetjusögur úr atvinnulífinu” þar sem við leggjum áherslu á að heyra og læra af þeim sem standa sig eins og hetjur í ólgusjó atvinnulífsins. Þau sem stíga á stokk eiga það sameiginlegt að hafa komið eftirtektarverðum ákvörðunum í framkvæmd á ýmsum sviðum og skilja þannig eftir dýrmætar reynslusögur til að taka með og nýta áfram. Strategía fagnar 10 ára starfsafmæli og hefur dagurinn fyrir löngu sannað gildi sitt.
Verið hjartanlega velkomin!
Dagskrá:
09:00–09:10 // Opnun
09:10–10:20 // Hetjusögur úr atvinnulífinu
10:20–10:40 // Kaffihlé
10:40–11:35 // Hetjusögur úr atvinnulífinu
11:35–11:45 // Samantekt og lokaorð
11:45 –12:00 // Netagerð
Eftirtaldir segja okkur hetjusögur úr atvinnulífinu:
Stefnumótun
• Ístak – Karl Andreasen, forstjóri
• Umhverfisstofnun – Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri
• Fríhöfnin – Þorgerður Þráinsdóttir, framkvæmdastjóri
Skipulag
• Samkaup – Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar og mannauðs
• Akureyrarbær – Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri
Stjórnarhættir
• Rue de Net – Alfred B. Þórðarson, framkvæmdastjóri
• Reykjavíkurborg – Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari
Sögustjóri er Jón Björnsson, forstjóri Origo