Kristófer Rodriguez Svönuson, bæjarlistamaður Kópavogsbæjar býður upp á fönkskotinn jólajazz á aðventuhátíð. Hljómsveitina skipa Daníel Helgason á gítar og Hannes Helgason á orgel auk Kristófers sem leikur á trommur.
Á boðstólum verður fjölbreytt tónlist úr klassískum jólakvikmyndum og af plötum sem á það sameiginlegt að vera vel grúví. Tónlistin ætti að höfða jafnt til dansglaðra sem og þeirra sem líður best sitjandi með kakó og fætur upp í loft.
Tónleikarnir fara fram frá klukkan 15 í forsal Salarins, öll velkomin og aðgangur ókeypis.