Að endalokum eru metnaðarfullir og kraftmiklir tónleikar sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Hljóðfæraleikarar tónleikanna eru ungt og framúrskarandi tónlistarfólk frá Íslandi, Bandaríkjunum og Nýja Sjálandi.
Efnisskrá tónleikanna samanstendur af þremur meistaraverkum 20.aldarinnar.
Þau eru öll skrifuð í kringum stríðsárin, en þar má þó sérstaklega nefna aðalverk tónleikanna, kvartett Messiaen fyrir endalok tímans. Verkið var samið á meðan tónskáldið dvaldi í fangabúðum fyrir stríðsfanga í austurhluta Þýskalands. Messiaen samdi fyrir hljóðfæraleikara sem voru einnig fangar í fangabúðunum og úr varð kvartett fyrir píanó, fiðlu, selló og klarínett. Kvartettinn var frumfluttur í stríðsfangabúðunum árið 1941 og er með erfiðari verkum sem skrifuð hafa verið fyrir þessa hljóðfærasamsetningu, tæknilega og andlega.
Verkin fyrir hlé eru ekki síðri. Tvö af þekktustu tríóum 20.aldarinnar.
Contrasts, eða Andstæður eftir Bartok er kröftugt og spennandi verk, og þó að það sé skrifað á svipuðum tíma og verk Messiaen vísar það heldur í þjóðlög og er því viss andstæða við grafalvarlega tónlist Messiaen. Þriðja verk efnisskrárinnar er píanótríó Schostakovich nr.2. Þetta tríó bindur saman fyrri og seinni hluta tónleikanna, en Schostakovich notar t.d. þjóðlög gyðinga í fjórða kafla verksins, sem ber einnig titilinn ´Dans dauðans´.

Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðluleikari hóf fiðlunám 5 ára gömul við Allegro Suzukiskólann þar sem kennarinn hennar var Lilja Hjaltadóttir ásamt fleirum. Hún lærði í kjölfarið hjá Guðnýju Guðmundsdóttir í tónlistarskóla Reykjavíkur og lauk diplómanámi frá Listaháskóla Íslands árið 2017 hjá Guðnýju og Sigrúnu Eðvaldsdóttir. Þaðan lá leiðin til Bandaríkjanna til að stunda BMus nám við Oberlin Conservatory þar sem prófessorinn hennar var Sibbi Bernharðsson. Herdís útskrifaðist síðar með meistaragráðu frá Yale School of Music árið 2023 undir handleiðslu sólóistans Augustin Hadelich. Herdís Mjöll hefur fengið viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárángur og fengið styrk til dæmis úr Sjóð Önnu K. Nordal, Ingjaldssjóði, American Scandinavian Society og tónlistarstyrk Jean Pierre Jacquillat. Herdís kom fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2017 sem sigurvegari í keppni Unga Einleikara og vann konsertkeppni útskriftarnema í Oberlin Conservatory árið 2020.
Herdís er sjálfstæður starfandi tónlistarmaður bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún spilar með Civic Orchestra of Chicago þar sem hún situr konsertmeistarasætið ásamt fleirum, kemur fram reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Elju Kammersveit ásamt því að hafa spilað með Chicago Symphony Orchestra og Minnesota Orchestra.

Steiney Sigurðardóttir er fædd árið 1996. Hún hóf sellónám 5 ára gömul hjá Örnólfi Kristjánssyni og var nemandi hans í átta ár við Suzuki tónlistarskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins. Hún lauk framhaldsprófi vorið 2012 undir handleiðslu Gunnars Kvaran, aðeins 16 ára gömul. Við nám sitt í Tónlistarskóla Sigursveins fékk Steiney sérstök verðlaun fyrir hæstu einkunn á miðstigi og 6.stigi. Frá áramótum 2013 til ársins 2015 var hún nemandi Sigurgeirs Agnarssonar við Listaháskóla Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún útskrifaðist með burtfararpróf. Steiney hlaut styrk Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi námsárangur og fyrir burtfararpróf sitt. Hún hóf nám 2016 í Tónlistarháskólanum í Trossingen þar sem hún kláraði bakkalárgráðu undir handleiðslu Prof. Francis Gouton.
Steiney hefur leikið einleik með Hljómsveit Tónlistarskóla Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Steiney gegnir stöðu staðgengils leiðara í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur einnig leikið með Kammersveit Reykjavíkur og er fastur meðlimur í Kammersveitinni Elju og Dúó Eddu.

Finn Alexander Schofield fæddist árið 1990 á Nýja Sjálandi. Hann byrjaði að læra á blokkflautu sjö ára gamall og skitpi yfir á klarínettuna tveim árum síðar. Klarínettan varð fljótt einn af lykilþáttum í lífi Finns og hann spilaði reglulega í kammerhópum og hljómsveitum í Nýja Sjálandi á sínum yngri árum, þar á meðal spilaði hann sem sóló-klarínett í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Auckland á árunum 2008-2014. Finn er með bakkalárgráðu frá Háskólanum í Auckland í klarínettuleik þar sem hann lærði undir handleiðslu James Fry og Bridget Miles. Árið 2014 fluttist hann til Evrópu þar sem hann hóf Masternám við Tónlistarháskólann í Zürich, Sviss, hjá Fabio di Casola og síðar Mastersnám í Kammermúsík við Tónlistarháskólann í Trossingen, Þýskalandi, hjá Chen Halevi.
Finn hefur spilað á námskeiðum fyrir marga af frægustu klarínettuleikurum heims. Þar má t.d. nefna Dimitri Ashkenazy, Janet Hilton, Michael Collins, Jürg Widmann og Ralph Manno. Hann hefur einnig spilað kammermúsík með Nicholas Daniel, Chen Halevi, Szabolz Zemplini og Akos Hernadi.
Árið 2019 fluttist Finn til Íslands. Hann er klarínettukennari við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og í Tónlistarskólanum á Akranesi. Finn spilar reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að vera virkur í kammermúsík á Íslandi og er einn af stofnendum blásarakvintettsins Hviða.

Píanóleikarinn og tónskáldið Liam Kaplan hóf störf við Sinfóníuhljómsveit Íslands 2024. Liam hefur komið fram á ýmsum tónleikaröðum á Íslandi, þar á meðal Tíbrá í Salnum Kopavogi, með Kammermúsikklúbbinum og 15:15. Hann hefur komið fram sem einleikari með Oberlin Sinfonietta, Oberlin Orchestra, og Aspen Conducting Academy Orchestra. Liam var meðlimur Aspen Contemporary Ensemble árin 2022–23 og hefur hann frumflutt mörg ný verk með þeim. Herdís Mjöll Guðmundsdóttir frumflutti fiðlukonsert Liams með Tim Weiss og Oberlin Contemporary Ensemble árið 2020. Hann hefur gefið út tvær einleiksplötur sem innihalda seinni hluta Das Wohltemperierte Klavier og Goldberg tilbrigðin eftir J.S. Bach. Seinni plata Liams inniheldur einnig 8 Prelúdíur eftir hann sjálfan og Orpheus Suite eftir Elizabeth Ogonek. Liam lauk bakkalárgráðu við Oberlin Conservatory þar sem hann lærði píanóleik hjá Alvin Chow og tónsmíði hjá Stephen Hartke. Ásamt því að vera píanóleikari, vinnur Liam sem útsetjari og nótnasmiður fyrir fyrirtæki eins og Boosey Hawkes og fyrir tónskáldin John Adams og Clarice Assad.
Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.