08. mar 13:30

Blóðheitar ástríður

Salurinn
3.900 - 4.500 kr.

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran, Pamela de Sensi flautuleikari og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari flytja blóðheit brasilísk þjóðlög, sefardískar vísur frá Spáni miðaldanna, Sögu tangósins eftir hinn argentíska Piazzolla og verkið Elegías de Gala, sem Steingrímur Þórhallsson samdi við ljóð listamannsins Salvador Dalí um eiginkonu sína. Verið velkomin á þessa óvenjulegu tríótónleika þar sem röddin, flautan og gítarinn fléttast saman í fallegum, innilegum og fjörugum lögum sem sjaldan heyrast á Íslandi.

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran hefur komið fram sem einsöngvari á tónleikum vítt og breitt um Evrópu, í Suður-Ameríku, Bandaríkjunum og Afríku í tónleikasölum svo sem Henry le Boeuf Hall í Bozar í Brussel, Auditorio Nacional de Música og Teatro Real í Madrid, Glinka sal Fílharmóníunnar og Belozelsky-Belozersky höllinni í St. Pétursborg, Coliseo í Buenos Aires, Wigmore Hall og Royal Festival Hall í London. Hún hefur sungið m. a. með Sinfóníuhljómsveitum Íslands, Madrídar, Barcelóna, Katalóníu, Sjónvarps- og Útvarpshljómsveit Spánar, St. Petersburg State Symphony Orchestra og Philharmonia Orchestra í London. Guðrún hefur sungið í óperum á Spáni, Bretlandi og Íslandi. Hún hefur sungið á fjölmörgum tónleikum víðs vegar um heim með Sonor Ensemble. Guðrún stundaði söngnám hjá Rut Magnússon í Tónlistarskólanum í Reykjavík og hjá Lauru Sarti í Guildhall School of Music and Drama í London. Söngur Guðrúnar hefur verið hljóðritaður á vegum RÚV, Sjónvarpsins, BBC, Spænska ríkisútvarpsins, Spænska sjónvarpsins og var hún einn af söngvurunum sem Sjónvarpið fjallaði um í þáttaröðinni Átta raddir. Hún hefur sungið inn á kvikmyndir, sjónvarpsþætti og inn á sautján geisladiska, m.a. á vegum 12 tóna, Smekkleysu, Naxos, ABU Records, EMEC Discos og Orpheus Classical.Guðrún er, ásamt Francisco Javier Jáuregui, stofnandi og listrænn stjórnandi Sönghátíðar í Hafnarborg sem hefur verið haldin árlega síðan árið 2017 og hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin sem Tónlistarhátíð ársins. Guðrún var ráðin skólastjóri Söngskólans í Reykjavík haustið 2024.

Pamela De Sensi tók einleikarapróf á flautu frá Conservatorio G. Perosi á Ítalíu 1998, lauk „Perfection Flutistic“ frá „Accademia di Musica Fiesole“ í Florens árið 2000 og útskrifaðist frá „Conservatorio Superiore di S. Cecilia“ í Róm árið 2002 með meistaragráðu í kammertónlist með hæstu einkunn.

Einnig hefur hún sótt tíma hjá heimskunnum flautuleikurum s.s. C. Klemm, M. Ziegler, F. Reengli, T. Wye, M. Larrieu og J. Galway. Pamela hefur komið fram á tónleikum víðsvegar, bæði sem einleikari sem og í kammertónlist og má þar nefna Frakklandi, Spáni, Englandi, Kasakstan, Mexíkó, Íslandi, Færeyjum, Finnlandi, í Bandaríkjunum og víðsvegar á Ítalíu, ásamt því að koma reglulega fram hér á Íslandi þar sem hún hefur búið frá árinu 2003., m.a. á tónlistarhátíðunum Myrkum músíkdögum, Tibrá í Salnum, Norrænum músíkdögum, Sumartónleikum í Skálholtskirkju, Menningarnótt, Tectonics, 15:15 tónleikaröðinni og Listahátið í Reykjavík. Árið 2009 var Pamelu boðið að halda tónleika á alþjóðlegri ráðstefnu The National Flute Association í New York og International Flute Festival Flautissimo í Róm árið 2010, 2012 og 2015, International Low Flute Festival í Washington 2018 þar sem hún flutti íslenska tónlist við góðan orðstír. Pamela hefur spilað á plötu Bjarkar UTOPIA.

Spænski gítarleikarinn og tónskáldið Francisco Javier Jáuregui stundaði nám í klassískum gítarleik í Los Angeles og Madríd áður en hann útskrifaðist með meistaragráðu frá Guildhall School of Music and Drama í London. Javier hefur komið fram á tónleikum, bæði sem einleikari og flytjandi kammertónlistar víðs vegar í Evrópu, Bandaríkjunum, Afríku og Suðaustur-Asíu. Hann hefur flutt gítarkonserta eftir Vivaldi og Rodrigo og önnur verk með sinfóníuhljómsveitum og kemur reglulega fram með öðru tónlistarfólki. Javier hefur leikið inn á fjölmargar upptökur og geisladiska. Hann hefur kennt á gítar frá árinu 1997, m.a. í London og Madríd og flutt fyrirlestra við háskóla á Spáni og í Bandaríkjunum. Á árunum 2002-2019 tók hann þátt í árlegum tónlistarverkefnum í á annað hundrað skóla á vegum Wigmore Hall tónleikasalarins í London. Javier er einn stofnenda og stjórnenda Festival Internacional de Música de Navarra (FIMNa) á Spáni og Sönghátíðar í Hafnarborg.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira