Vegna gríðalegrar eftirspurnar verður leikurinn endurtekinn í Salnum þann 10. apríl nk. kl. 20:00!
Sýningarnar þann 28. og 29. mars vöktu mikla lukku áhorfenda og færri sem komust en vildu. Því hefur AUKASÝNING verið sett af stað í sölu.
Guðni Ágústsson og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir mæla þetta stærsta bókmenntaafrek Íslandssögunnar af munni fram og kallast á við Gissur Pál Gissurarson óperusöngvara sem flytur áheyrendum Njálutengda og rammíslenska söngtónlist.
Hin fjölsótta Njáluvaka í Rangárþingi var hugarfóstur Guðna Ágústssonar, formanns nýstofnaðs Njálufélags. Engum vafa er lengur undirorpið að þetta stórkostlega bókmenntaverk á sér sterkar rætur í íslenskri þjóðarsál. Hin meitlaða frásögn af köldum kvennaráðum, einlægri vináttu, miskunnarlausum hefndarþorsta, ástum, átökum og örlögum litríkra sögupersóna magnast í meðförum þeirra Guðna og Ólínu sem hér hafa þjappað sögunni saman og mæla hana af munni fram eins og þeim er einum lagið.
Með þeim á sviðinu verður hetjutenórinn Gissur Páll Sigurðarson óperusöngvari. Hann hefur alla tíð lagt mikla rækt við gamla íslenska söngtónlist og er því svo sannarlega réttur maður á réttum stað til þess að kallast á við þau Guðna Ágústsson og Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur um sögusvið Njálu auk þess að syngja Njálutengd og rammíslensk lög við undirleik Matthildar Önnu Gísladóttur.
Hér er Brennu-Njáls saga sett í nýjan og spennandi búning og skreytt með óperusöng Gissurar Páls á þessum gömlu íslensku slóðum.








