21. mar 13:00 – 15:00

Klappleikir með Sigga&Ingibjörgu

Salurinn

Hvers konar tónlist má finna í öllum menningarsamfélögum?

Klappleiki barna!

Í þessari fjölskyldusmiðju, sem fram fer í forsal Salarins, verður farið í einfalda og skemmtilega klappleiki og söngva. Einu hljóðfærin sem við þurfum að taka með okkur erum við sjálf. 

Öll börn og fullorðnir fara syngjandi heim með nýja leiki sem vekja gleði og kátínu!

Sigurður Ingi Einarsson og Ingibjörg Fríða Helgadóttir eru reyndir smiðjuleiðbeinendur og tónlistarfólk. Hann er slagverksleikari og hún er söngkona og saman munu þau leiða þátttakendur í klappi, stappi og söng.

Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira