Þann 18. apríl sameinast í Salnum í Kópavogi nokkrir af fremstu harmoniku- og bandóneonleikurum heims Prof. Dr. Klaudiusz Baran (Pólland), Prof. Raimondas Sviackevičius (Litháen), Prof. Giuseppe Scigliano (Ítalía), German Khlopin (Ísland) ásamt sellóleikaranum Steiney Sigurðardóttur og kvartettinum Icelandic Strings. Saman flytja þau tónverk meistara Astor Piazzolla sem skapaði Tango Nuevo og gjörbreytti heimsmynd tangósins.
Á efnisskrá tónleikanna eru sum fegurstu og þekktustu verk Piazzolla; Libertango, Oblivion, Adios Nonino, Le Grand Tango og fleiri. Kynnir kvöldsins er Paolo Picchio, einn fremsti Piazzollafræðingur heims.
Þetta er einstakt tækifæri til að upplifa harmonikuna og bandóneonið í höndum meistaranna.
Tónleikarnir eru samstarf Listaháskóla Íslands við Salinn Tónlistarhús.












