Þann 30. maí næstkomandi hefði Jónas Ingimundarson orðið 82 ára en nú er liðið ár frá andláti þessa merka manns.
Jónas var einstakur píanóleikari og ötull við kynningu á klassískri tónlist og íslenskum sönglögum bæði hérlendis og erlendis. Hann hafði víðfeðm áhrif á þróun tónlistarmála landsins og barðist fyrir stofnun og eflingu tónleikahalds í nýjum rýmum. Þess má geta að Salurinn í Kópavogi væri líklega ekki til í dag ef ekki hefði verið fyrir krafta og sannfæringarmátt Jónasar.
Nú hefur Kristinn Sigmundsson, auk fjölda vina og samstarfsmanna Jónasar, ákveðið að heiðra minningu hans með því að stofna minningarsjóð sem mun í fyllingu tímans úthluta styrkjum til ungra og efnilegra söngvara og píanóleikara.
Til að hefja söfnun í sjóðinn verður blásið til tónlistarveislu á afmælisdegi Jónasar, þann 30. maí kl. 14:00.
Stefnt er að því að minningartónleikar Jónasar Ingimundarsonar verði árlegur viðburður í Salnum á fæðingardegi Jónasar.
Allur ágóði rennur óskiptur í minningarsjóðinn.

Fram koma:
- Alexandra Chernyshova,
- Auður Gunnarsdóttir,
- Gunnar Guðbjörnsson,
- Hallveig Rúnarsdóttir,
- Hildigunnur Einardóttir,
- Kolbeinn Jón Ketilsson,
- Kristinn Sigmundsson,
- Kristján Jóhannesson,
- Kristín Sveinsdóttir,
- Oddur Arnþór Jónsson,
- Sigrún Hjálmtýsdóttir,
- Viðar Gunnarsson og
- Þóra Einarsdóttir.
Með þeim leika píanistarnir:
Helga Bryndís Magnúsdóttir og Hrönn Þráinsdóttir.













