Ðe Lónlí blú bojs er hljómsveit sem stofnuð var upp úr Hljómum síðla árs 1974, reyndar mætti með góðum rökum benda á að þetta sé sama sveitin enda skipuð sama mannskap. Tónlistaráherslur voru þó hvorki hinar sömu, né nafnið og því varla við hæfi að segja þær sömu sveitina.Upphafið má þó rekja til þess að Hljómaliðar vildu breyta um stíl, spila léttari tónlist og brugðu því á það ráð að dulbúa sveitina sem eins konar leynisveit
Á þessum tónleikum ætlum við að fara aftur til áranna 1974 – 1976 og leyfa ykkur að heyra öll vinsælustu lög þeirra, þar á meðal lög á borð við Harðsnúnu Hönnu, Heim í Búðardal, Mamma grét og mörg mörg fleiri.
Hljómsveitarstjóri og útsetningar:
Magnús Þór Sveinsson
Sögumaður:
Valgerður Erlingsdóttir
Hljómsveit kvöldsins
- Eiríkur Hilmisson – kassagítar
- Friðrik Örn – bassi
- Magnús Þór – hljómborð
- Ragnar Már – saxófónn
- Siggi Ingi – trommur
- Yngvi Rafn – rafmagnsgítar
Söngvarar kvöldsins
- Daníel E. Arnarsson
- Gísli Magna
- Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm
- Kristján Gíslason
- Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
- Sigurður Dagbjartsson
Bakraddir
- Íris Lind Verudóttir
- Rakel Pálsdóttir
Hugmynd- viðburðastjórnun og lagaval:
Hulda Jónasdóttir







