11. jún 17:00

LÓN | Sumartónar í Salnum

Sumartónar snúa aftur í Salinn. Í júní býður Salurinn, í samstarfi við Menningar- og Mannlífsnefnd Kópavogs, gestum sínum í ljúfar tónlistarstundir í forsal Salarins.

Hljómsveitin LÓN samanstendur af þremur ástsælum íslenskum tónlistarmönnum en þar leiða saman hesta sína þeir Valdimar Guðmundsson, Ómar Guðjónsson og Ásgeir Aðalsteinsson. Hljómsveitin spilar ljúfa Americana tónlist. Það verður hugguleg stund þegar LÓN stígur á stokk.

Sumartónar í Salnum, sem hét áður Sumardjazz, hefur slegið hefur rækilega í gegn síðastliðin ár. Fjölbreyttar tónlistarupplifanir þar sem ýmsar tónlistarstefnur fá að njóta sín.

Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní kl. 17:00 og eru um klukkustundar langir.

Dagskrá Sumartóna:
4. júní – Hundur í óskilum
11. júní – LÓN
18. júní – Hildur Vala og synir
25. júní – Góss

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Léttar veitingar verða til sölu.

Sjáumst í sumarfíling í Salnum!

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira