18. jún 17:00

Hildur Vala | Sumartónar í Salnum

Sumartónar snúa aftur í Salinn. Í júní býður Salurinn, í samstarfi við Menningar- og Mannlífsnefnd Kópavogs, gestum sínum í ljúfar tónlistarstundir í forsal Salarins.

Hildur Vala hefur fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu landsmanna. Á sumartónum mun hún flytja hugljúfa tónlist ásamt sonum sínum, sem eru hæfileikaríkir ungir listamenn.

Sumartónar í Salnum, sem hét áður Sumardjazz, hefur slegið hefur rækilega í gegn síðastliðin ár. Fjölbreyttar tónlistarupplifanir þar sem ýmsar tónlistarstefnur fá að njóta sín.

Tónleikarnir fara fram á fimmtudögum í júní kl. 17:00 og eru um klukkustundar langir.

Dagskrá Sumartóna:
4. júní – Hundur í óskilum
11. júní – LÓN
18. júní – Hildur Vala og synir
25. júní – Góss

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Léttar veitingar verða til sölu.

Sjáumst í sumarfíling í Salnum!

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira