Tónleikar í Salnum í Kópavogi föstudaginn 16. október 2026 kl. 20:00, til heiðurs stórsöngvurunum Jóni Sigurbjörnssyni, Garðari Cortes og Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Fjallað verður um feril þessara listamanna og flutt söngatriði úr efnisskrám þeirra.
Flytjendur: Egill Árni Pálsson, Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir, Kristinn Sigmundsson, Hrönn Þráinsdóttir, Signý Sæmundsdóttir, Arnar Jónsson, Sigurður Helgi ásamt Karlakór Kópavogs.
Verkefnið er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.











