
Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir – sameiginleg rót.
Hér eru á ferðinni einlægir tónleikar sem snúast um samspil, fjölskyldubönd og tónlist sem verður aðeins til á milli þeirra sem eiga sameiginlegan hljóðheim.
Ásgeir og Steini – 29.janúar
Diddú og Palli – 26.febrúar
Elísabet og Helga Möller – 12.mars
Svala og Krummi – 30.apríl

ÁSGEIR TRAUSTI & STEINI
Bræðurnir Ásgeir Trausti Einarsson og Þorsteinn Einarsson eru flestum landsmönnum kunnugir. Ásgeir hóf sinn feril með plötunni Dýrð í Dauðaþögn árið 2012 og Þorsteinn hefur í hljómsveitinni Hjálmum síðan árið 2004. Steini ólst upp á Hallormsstað og hefur í gegnum tíðina samið og sungið mörg af ástsælustu lögum hljómsveitarinnar. Báðir hafa þeir náð að fanga hug og hjörtu þjóðarinnar með lögum eins og Leiðin okkar allra og Bernskan, en það sem sameinar þá enn frekar í tónlistinni eru textaskrif föður þeirra, Einar Georgs Einarssonar, sem hefur samið marga lagatexta fyrir þá báða.
Ekki missa af þessari einstöku stund með bræðrunum tveimur.

PÁLL ÓSKAR & DIDDÚ

ELÍSABET ORMSLEV &
HELGA MÖLLER
Mæðgurnar Helga Möller og Elísabet Ormslev sameina krafta sína á tónleikum þar sem tvær kynslóðir söngkvenna mætast á sviðinu.
Helga Möller er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar og hefur átt langan og litríkan feril. Hún steig á Eurovision-sviðið árið 1986 með ICY hópnum með lagið „Gleðibankinn” og varð síðar hluti af dúettinum Þú og Ég, sem naut mikilla vinsælda á diskótímabilinu með lögum á borð við „Dans, dans, dans”, „Þú og ég” og „Í Reykjavíkurborg”. Helga hefur einnig átt stóran þátt í að gera íslensk jólalög að hluta af jólaminningum þjóðarinnar.
Elísabet Ormslev hefur getið sér gott orð sem söngkona og lagahöfundur með kraftmikla rödd og sterka sviðsframkomu. Hún hefur komið víða við á tónlistarferlinum, tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins, gefið út lög á borð við „Sugar”, sem náði toppsæti á íslenskum vinsældalistum árið 2019, og „Heart Beats”, sem heyrðist í vinsælu raunveruleikaþáttunum Love Is Blind á Netflix. Hún hefur einnig framleitt vinsæla tónleika á borð við GRL PWR og Adele heiðurstónleika og var fastagestur á sjónvarpsskjáum landsmanna með hljómsveitinni Albatross í Tónaflóði RÚV árið 2020 og 2021.
Á þessum einstöku tónleikum mætast reynsla, orka, grín og tónlistarástríða mæðgnanna í söngveislu sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Svala Björgvins & Krummi
Á tónleikunum Blóðbönd í Salnum í Kópavogi koma systkinin Krummi Björgvinsson og Svala Björgvinsdóttir saman á sviði í fyrsta sinn í þessu samhengi og deila með áhorfendum tónlist sem tengir þau sterkum böndum við föður þeirra, Björgvin Halldórsson, sem lést fyrr á árinu.
Flutt verða lög eftir Krumma og Svölu, ásamt lögum sem Björgvin söng og samdi. Frumsamið efni verður í bland við tökulög og farið verður víða um tónlistarheiminn frá því persónulega yfir í lög sem hafa fylgt fjölskyldunni í gegnum árin. Inn á milli verða sagðar sögur, minningar og kannski eitt og annað sem hefur ekki ratað á svið áður.
Hljómsveitin hans Krumma, Krákurnar, sér um undirspilið og saman ætla þau að eiga með ykkur kvöld þar sem tónlistin fær að leiða áfram, frá einni kynslóð til þeirrar næstu.
Þetta er í fyrsta sinn sem systkinin koma saman á svið með þessum hætti og þau hlakkar gríðarlega til að deila þessu kvöldi með ykkur, tónlistinni, sögunum og minningunum sem fylgja.
Blóðbönd eru stundum ósýnileg. Maður finnur þau í röddinni, í laglínunni og í sögunum sem lifa áfram.







