Jólin í Salnum | Miðasala hafin!

Jólin í Salnum verða fjölbreytt í ár! Hátíðlegir jólatónar, grín og glens, fjölskylduskemmtanir, unaðslegur söngur og hljóðfæraleikur. Það verður sannarlega eitthvað fyrir öll á aðventunni í Salnum.

Jólakötturinn og dularfulla kistan

Töfrandi barna- og fjölskyldusýning þar sem börnin taka virkan þátt í að bjarga jólunum!

Jólakötturinn & dularfulla kistan er gagnvirk fjölskyldusýning þar sem börnin eru ekki bara áhorfendur heldur verða þau hluti af ævintýrinu og hjálpa Jólakettinum að leysa verkefnið.

Leikarar í sýningunni eru tveir ásamt nokkrum rauðklæddum og óvæntum gestum.

Jólin enn á ný með Margréti Eir

Stórsöngkonan Margrét Eir hefur í rúma þrjá áratugi heillað landsmenn með sinni kraftmiklu rödd, hæfileikum og óneitanlegum sjarma en hún hefur fyrir löngu skipað sér sess sem ein okkar færasta og ástsælasta söngkona. Rödd Margrétar er ekki síst orðin ómissandi hluti af jólatónaflóðinu með öllu frá árlegum jólatónleikum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði og Salnum í Kópavogi, að hinum ógleymanlegu Frostrósum.


Þetta árið færir Margrét okkur ljúfa en hátíðlega tóna við vandaða, íslenska texta með útgáfu einstakrar jólaplötu en útgáfunni fögnum við að sjálfsögðu með glæsilegum jóla- og útgáfutónleikum í Salnum. Þar má hlýða á lög af plötunni í bland við önnur vel valin jólalög í flutningi Margrétar ásamt hljómsveit og frábærum gestum. Ekki missa af þessu tækifæri til að kynnast plötunni, kaupa hana á afsláttarverði og hverfa frá hversdagsamstrinu á dásamlegri kvöldstund í Salnum. Áheyrendur mega eiga von á sannkallaðri veislu sem leiðir okkur brosandi inn í anda jólanna.

Í syngjandi jólasveiflu – Jólalög Geirmundar Valtýssonar

Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson er öllum að góðu kunnur eftir að hafa skemmt Íslendingum í áratugi. Hann hefur staðið á sviðinu allt frá árinu 1958 og verið einn afkastamesti tónlistarmaður landsins . Fjölmargir stórsmellir eru runnir frá Geirmundi auk fjölda breiðskífa en þær eru á annan tug. Á þessum tónleikum ætlum við að flytja jólalög eftir Geirmund og hver veit nema nokkrar þekktar perlur hans fái að fljóta með.
Tryggðu þér miða á einstaka kvöldstund og hlustaðu á fallegu lögin hans Geira.

Jólatímavélin – ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur

Jólatímavélin er ný tónleikaupplifun fyrir börn og fjölskyldur þar sem tónlist liðinna jóla og skemmtilegar sögur fléttast saman. Tilvalin leið til að vekja áhuga ungra huga á fjölbreytileika tónlistarinnar en á tónleikunum fáum við m.a. að heyra klassík, þjóðlagatónlist, gömul dægurlög og ferskar útsetningar af nýrri tónlist.

Samferða þessu verður kafað í hljóma, yfirtónasöng og mátt tónlistar til að flytja okkur í annan heim. Þessir skemmtilegu tónleikar eru tilvalin leið til að bjóða jólin velkomin í faðmi fjölskyldunnar. Hver veit nema mandarínur verði í boði?

Temú jól

Jólatónleikar með þremur af ódýrustu skemmtikröftum Íslands.

Líklega verður alltof mikið af öllu þegar slegið verður á létta jólastrengi og hressustu jólalögunum verður slátrað í vanfjármögnuðum útsetningum á þessum útsölutónleikum í anda Temú. Halli, Gói & Jón á sannkölluðu jólatilboði!

Þeim til aðstoðar er gítarleikarinn Stefán Már Magnússon, umboðsmaður Temú á Íslandi.

Jazzkonur og jólin með Páli Óskari

Hinar einu og sönnu Jazzkonur koma saman á sínum árlegu jólatónleikum í Salnum laugardaginn 12.desember.

Á tónleikunum flytja þessar frábæru jazzsöngkonur öll sín uppáhalds jólalög ásamt kvartett Vignis Þórs Stefánssonar.
Sérstakur gestur þeirra í ár engin annar en stórstjarnan Páll Óskar.

Tónleikarnir hefjast kl.20:00 og eru um 2 klst með hléi.

Jólatónleikar Borgardætra

Borgardæturnar Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir mæta í Salinn með sína einstöku blöndu af hátíðleika og léttu glensi. Á efnisskránni eru lög af hinni rómuðu Jólaplötu, t.d. Amma engill, Litli stúfur, Þorláksmessa o.fl auk fjölbreyttra laga úr ýmsum áttum og auðvitað verður hið árlega áhættuatriði á sínum stað.

Með þeim spila Eyþór Gunnarsson á píanó, Andri Ólafsson á bassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur.

Una Torfa í jólafötunum

Una Torfa kíkir í Salinn í jólaskapi! Á notalegum tónleikum mun Una flytja blöndu af sínum eigin lögum og jólalögum sem henni þykir vænt um. Hafsteinn Þráinsson verður með Unu á sviðinu og leikur á gítar.

Í jólastressinu er ekkert betra en að gefa sér góða kvöldstund til þess að slaka á og rifja upp friðinn sem gleymist oft í undirbúningi jólanna. Una ætlar að skapa friðsælt og ljúft andrúmsloft eins og henni einni er lagið. 

Ímyndaðu þér heitt súkkulaði, heitt súkkulaði með eins miklum þeyttum rjóma og þig lystir, heitt súkkulaði og tvö piparkökuhjörtu á undirskál. Finnurðu hlýjuna? Svona mun þér líða þegar þú kemur að sjá Unu Torfa í jólafötunum í Salnum þann 18.desember.

Ljós í myrkri – Vigdís Hafliða og hljómsveit

Vigdís Hafliðadóttir syngur ýmis hugljúf íslensk og skandinavísk jólalög sem fjalla meira um ljósið og samveru og minna um stress og jólagjafir.

Tónleikarnir inni í sal hefjast kl. 20 en húsið opnar kl. 19 og þar mun Tríóið Fjarkar spila í forsalnum og gestir eru því hvattir til að mæta fyrr og eiga samverustund með sínum kærustu.

Á sviðinu verða Anna Gréta Sigurðardóttir djasspíanóleikari, Örn Ýmir Arason, kontrabassaleikari og Kristinn Þór Óskarsson, gítarleikari.

Jólin með þér | Jólatónleikar Ragnheiðar Gröndal

Notalegir jólatónleikar á síðasta sunnudegi í aðventu með Röggu Gröndal, Gumma Pé og Birgi Steini.

Tónleikar fyrir fólk sem elskar lágstemmda jólatónlist og vill setja réttan tón fyrir hátíðina.

Flutt verða lög af Vetrarljóðum Ragnheiðar sem er fyrir löngu orðin sígild aðventuplata, auk jólalaga í hennar flutningi sem og sígildra jólalaga sem öll elska.


Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

Sjá meira