Opið fyrir umsóknir í Tíbrá ’27-’28

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um þátttöku í tónleikaröðina Tíbrá í Salnum fyrir tónleikaárið 2027 – 2028.

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið.

Umsóknarfrestur er til miðnættis miðvikudaginn 20. janúar 2027.
Sótt er um í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar.
Velja þarf umsóknir og leita þar að ,,Tíbrá“.

Deildu þessari grein

TENGDIR
VIÐBURÐIR

Sjá meira