Bæjarlistamaður Kópavogs 2014

Salka Sól, Þuríður Blær og Tinna Sverrisdóttir

Listakonur

Hljómsveitin Tazmania hefur verið starfandi í um hálft ár en allar hafa þær þrjár sem skipa  hljómsveitina unnið að listsköpun í langan tíma. Tvær þeirra eru aldar upp í Kópavogi. Þær Þuríður, Tinna og Salka eru menntaðar í leiklist en hreyfingin Reykjavíkurdætur leiddi þær saman. Þær komu fram á ljóðahátíð Kópavogsbæjar í janúar síðastliðnum þar sem þær röppuðu um konur sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi. Einnig lásu þær upp verðlaunaljóð hátíðarinnar.