Hugljúfar ballöður í bland við hressa smelli sem sótt eru í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Eurovision) og söngleiki. Draumur um Nínu, Ég á líf, Húsavík og fullt af fleiri lögum á tónleikum Barnakórs og Skólakórs Smáraskóla á Barnamenningarhátíð. Ásta Magnúsdóttir stjórnar flutningi á yndislegum hádegistónleikum og hver veit nema tónleikagestir geti tekið undir með kórunum í þekktustu lögunum.
Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.