02. okt 20:30

Ari Eldjárn | Af fingrum fram

Salurinn
Nældu þér í miða á forsöluverði út 10.ágúst!
7.500 - 8.900 kr.

Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum.

Grínistinn geðþekkir mætir á ný í Salinn og heimsækir vin sinn úr Vesturbænum.  Þeir félagar slógu síðast á létta strengi laust eftir að samkomubanni sleppti í Covid og þá sátu áhorfendur með gott bil á milli sín, grímuklæddir, og hlógu að uppátækjum þeirra félaga.  Nú verður skemmtunin hinsvegar grímulaus og ljóst að af nógu er að taka þegar ferill Ara Eldjárn verður krufinn í tveggja manna tali, tónlistarflutningi og græskulausu gríni.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira