Hljómsveitin Fjaðrafok heldur tónleika og ball með danskennslu í anddyri Salarins í Kópavogi.
Hver tími hefur sína partýtónlist og á millistríðsárunum var það dunandi sveifla sem tryllti lýðinn. Hljómsveitin Fjaðrafok hefur einsett sér að endurvekja þessa stemningu með tónlist frá þeim tíma.
Hljómsveitin verður með tónleika í anddyri Salarins í Kópavogi þar sem allir eru velkomnir að koma og hlusta á fjöruga tóna. Á undan tónleikum verður ókeypis danskennsla fyrir áhugasama og dansinn heldur áfram á meðan á tónleikum stendur.
Danskennsla hefst klukkan 19:30 og tónleikaball hefst klukkan 20:30.
Ekki er nauðsynlegt að koma með dansfélaga! Ókeypis inn.
Verkefnið fékk styrk frá lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.