25. mar 12:15 – 13:00

Einfaldlega klassík | Gissur Páll Gissurarson

Salurinn

Miðvikudaginn 25. mars heldur viðburðaröðin Einfaldlega klassík áfram í Salnum þegar Gissur Páll Gissurarson óperusöngvari sest niður með Magnúsi Lyngdal í hádegisspjall og tekur jafnvel lagið.

Tónninn var snemma sleginn í lífi Gissurar Páls þegar hann aðeins ellefu ára gamall hóf söngferil sinn í Þjóðleikhúsinu í titilhlutverki Oliver Twist . Hann nam við Söngskólann í Reykjavík og síðar við Conservatorio G.B. Martini í Bologna, auk þess að njóta handleiðslu Kristjáns Jóhannssonar. Frá fyrstu skrefum sínum sem einsöngvari árið 2003 hefur hann sungið fjölmörg hlutverk og komið fram víða erlendis, meðal annars í Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Japan og Bandaríkjunum.

Gissur Páll hefur hlotið verðlaun í alþjóðlegum söngvarakeppnum, þar á meðal í Flaviano Labò-keppninni og í Brescia þar sem hann fékk einnig sérstök verðlaun gagnrýnenda.

Í samtalinu verður sjónum beint að ferlinum, mótandi áhrifum á söngvarann, lífinu á alþjóðlegum vettvangi og óperusöngnum sjálfum.

Aðgangur á viðburðinn er ókeypis og öll eru velkomin.

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira