Skálholt hefur safnað í flygilsjóð og hyggst nú festa kaup á Steinway flygli Salarins í Kópavogi.
Kópavogsbær ætlar að fjárfesta í nýjum flygli fyrir tónlistarhúsið.
„Það hefur aldrei í sögunni verið til flygill í Skálholtsdómkirkju“, segir Jón Bjarnason, tónlistastjóri Skálholts „Það er gríðarlega öflugt tónlistarlíf í Skálholti og er hljómurinn þar algjörlega magnaður. Á hverju ári eru haldnir fjölmargir tónleika og er Skálholt einn eftirsóttasti staður á íslandi fyrir kórtónleika. Reglulega eru þar tónleikar með innlendum og erlendum kórum. Oft er píanómeðleikur nauðsynlegur með kórtónlist og er mjög mikilvægt að Skálholtsdómkirkja geti boðið upp á slíkt hljóðfæri í hæsta gæðaflokki þegar á þarf að halda. Flygill kemur sér einnig frábærlega í helgihaldi staðarins með sálmasöng og sem er oft mjög góður með píanómeðleik.“
Það virðist örlagakennt að einmitt þegar Kópavogsbær ákveður að selja annan flygil Salarins til þess að fjármagna kaup á nýjum Steinway flygli sé Skálholtsstaður að leggja lokahönd á að safna fyrir einmitt slíku hljóðfæri. Safnast hefur dágóð upphæð í flygilsjóð Skálholts sem byrjaði með stóru og veglegu framlagi frá Kirkjubyggingarsjóði frá Laugarvatni. Síðan hafa verið nokkrir tónleikar og hafa ýmsir lagt fram rausnarleg fjárframlög í þetta góða málefni. Fráfarandi ríkistjórn styrkti sjóðinn um fjórar milljónir kóna í desember síðastliðnum. Aðeins vantar rúmar 3 milljónir til að geta fjármagnað flygilkaupin að fullu. Því var það ákveðið í samvinnu við Salinn að halda söfnunartónleika og við erum þess fullviss að þessir tónleikar munu skila okkur inn því sem upp á vantar.
Á þessum tónleikum kemur fram tónlistarstjóri og organisti Skálholts, Jón Bjarnason, ásamt Skálholtkórnum og félögum úr Karlakór Selfoss. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur einsöng og Jóhann I. Stefánsson leikur á trompet.
Á efnisskránni verða leikin verk á píanóið sem spanna sögu tónbókmenntanna frá J. S. Bach, Beethoven, Chopin, Lizst og allt til okkar ástsælu Páls Ísólfssonar og Sigvalda Kaldalóns.
„Við vonum að allir velunnarar Skálholts sjái sér fært að koma og styrkja okkur að koma þessu glæsilega hljóðfæri til okkar.“ segir Jón vongóður.