Dagana 26.- 28. ágúst býðst tónlistarfólki og tónlistarnemum að sækja tónlistarsmiðjur hjá íslensku og pólsku jazz- og spunatónlistarfólki í fremstu röð.
Smiðjurnar fara fram í Salnum í Kópavogi og eru liður í pólsk-íslensku verkefni sem snýst um að efla samstarf og tengslanet íslenskrar og pólskrar jazztónlistarsenu. Þátttaka er nemendum að kostnaðarlausu en takmarkaður fjöldi kemst að.
Tónlistarfólk frá Póllandi og Íslandi mun deila þekkingu sinni hvað varðar tónlistarflutning og sviðsreynslu auk þáttum sem snúa að tónlistarbransanum í víðara samhengi.
Til þess að sækja um þarf að senda stuttan póst (ekki meira en 200 orð) með upplýsingum um nafn, aldur, tónlistarnám og tónlistarbakgrunn. Smiðjurnar verða allar teknar upp og síðar settar á netið. Með umsókninni lýsir þátttakandi yfir samþykki varðandi upptöku.
Vinsamlegast sendið póst á ensku á workshops@plateaux.pl

Dagskrá tónlistarsmiðjanna er sem hér segir:
Þriðjudagur 26. ágúst 2025
TÓNLISTARSMIÐJA 1
10:30 – 12:00 Gítaleikarinn Rafał Sarnecki [PL] leiðir tónlistarsmiðju
TÓNLEIKAR
16:00 Húsið opnar
16:15 Kvintett Kacper Smoliński [PL/IS]
17:20 Unnur Birna Bassadóttir og hljómsveit [IS/PL]
Miðvikudagur, 27. ágúst 2025
TÓNLISTARSMIÐJA 2
10:30 – 12:00 Slagverksleikarinn Matthías Hemstock [IS] leiðir tónlistarsmiðju
TÓNLISTARSMIÐJA 3
12:30-14:00 Tónlistarsmiðja með Birgi Steini Theodórssyni, kontrabassaleikara
TÓNLISTARSMIÐJA 4
14:30-16:00 Söngkonan og fiðluleikarinn Unnur Birna Bassadóttir [IS] leiðir tónlistarsmiðju
Fimmtudagur, 28. ágúst 2025
TÓNLISTARSMIÐJA 5
10:30 – 12:00 Tónlistarsmiðja með píanóleikaranum Piotr Wyleżoł [PL]
TÓNLISTARSMIÐJA 6
12:30-14:00 Kacper Smoliński [PL] munnhörpuleikari leiðir tónlistarmiðju
TÓNLISTARSMIÐJA 7
14:30-16:00 Vinnusmiðja með Krzysztof Bober [PL] (PLX VR) // Dolby Atmos + 360 VR vídjó