Ljúf og klassísk jólalög í flutningi Kjalars Martinssonar Kollmar, Alexanders Grybos á gítar og Hlyns Sævarssonar á kontrabassa.
Þeir félagar taka klassísk jólalög í mjúkri sveiflu. „Hvít jól“ og „Ég verð heima um jólin“ eru á meðal dásamlegra laga sem hljóma munu í túlkun tríósins en tónleikarnir fara fram í Forsal Salarins, hefjast kl. 15 og standa yfir í rúman hálftíma.
Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis.