Jazzplatan More Than You Know kom út á vínyl í sumarbyrjun 2022 og hefur hlotið frábærar viðtökur. Silva Þórðardóttir syngur, og Steingrímur Teague spilar á wurlitzer og filtdempað píanó ásamt því að raula annað slagið. Fyrir utan eitt örstutt bassaklarinettsóló – sem Jóel Pálsson leikur uppúr þurru í bláendann – koma engir aðrir flytjendur við sögu á plötunni.
Lítið er um flugelda og bellibrögð í hljóðfæraleik, hverfandi áhersla lögð á hefðbundna sveiflu eða grúv. Í staðinn er áherslan lögð á lögin sjálf, og í því að skapa þeim bæði veglega og sérstæða umgjörð. Í öllu falli virðist útkoman ganga vel í fólk, því hlustun á efnisveitum hefur verið óvenju mikil af jazzplötu að vera, og flest laganna á alþjóðlegum jazzspilunarlistum Spotify
En nú stendur til að flytja herlegheitin á tónleikum, og til að gera nostursömum hljóðheimi plötunnar skil á tónleikum fá þau Silva og Steingrímur til liðs við sig Daníel Friðrik Böðvarsson á hljóðgervil og gítar. Hlustendur mega eiga von á trega, fegurð, og nístandi en jafnframt notalegu hjartasári
„En þótt efnið megi kallast gamalkunnugt jazzmeti er flutningurinn það ekki. Söngurinn er afvopnandi einlægur, brothættur og heilsteyptur í senn, hrífandi án minnstu sýndarmennsku og kallast þar á við hljómborðsleikinn, á Wurlitzer rafmagnspíanó og dempað píanó sem gefur plötunni sérstæðan og óvenju mjúkan hljóm, þar sem eru leikin ótal tilbrigði við stefin og hljómana en ekki spiluð eiginleg jazzsóló með tilheyrandi flugeldasýningum. Svo kannski bregst okkur flokkunarfræðin, og þetta er ekki jazz og það er verið að leika á okkur?“
Halldór Guðmundsson
Menning á miðvikudögum er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogsbæjar. Viðburðir eru haldnir á víxl á Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Salnum þar sem boðið er upp á fjölbreytt erindi, listamannaleiðsagnir og tónleika.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.