20. mar

Tíbrá ’24-’25

Umsóknarfrestur rennur út 20. mars
...

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið. Tónleikaröðin er kjörinn vettvangur fyrir unga tónlistarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í tónlistarheiminum jafnt sem reynda tónlistarmenn sem hafa gert garðinn frægan innan sem utan landsteinanna.
Við val á verkefnum er sérstaklega horft til nýsköpunar og frumlegrar nálgunar á klassískt höfundarverk.

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2024.
Sótt er um í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar.

Tíbrá er tónleikaröð Salarins styrkt af
lista- og menningarráði Kópavogs

Deildu þessum viðburði

27. apr / kl. 13:30

18. maí / kl. 13:30

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira