Salurinn í Kópavogi kynnir með stolti dagskrá þriggja tónleikaraða fyrir tónleikaveturinn 2025–2026: Af fingrum fram, Tíbrá og Söngvaskáld.

Tónleikaraðirnar eru allar ólíkar að eðlisfari, en sameinast þó í markmiði Salarins um að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá fyrir breiðan hóp áheyrenda.
Axel Ingi Árnason, forstöðumaður Salarins, segist spenntur fyrir komandi tónleikaári en tónleikaraðirnar eru þungamiðjan í starfsemi hússins. ,,Tónleikaárið sem er að líða gekk afskaplega vel og við ætlum að halda áfram að bjóða upp á tónlist í hæsta gæðaflokki. Við bætum í Tíbrá, en í ár verða tónleikarnir níu talsins. Gífurlegur fjöldi góðra umsókna bárust frá hæfileikaríku tónlistarfólki og var úr vöndu að velja. Spjalltónleikaröð Jóns Ólafs, Af fingrum fram, hélt upp á 15 ára afmæli á liðnu ári með 11 glæsilegum tónleikum en þetta sextánda starfsár raðarinnar verður sko alls ekki síðra. Mér hefur þótt gaman að vinna að tónleikaröðinni Söngvaskáld, þar sem kastljósinu er beint að listamönnum sem flytja eigin tónlist. Nú er þriðja ár raðarinnar að hefjast en við á litla Íslandi búum að því að eiga einstaklega mikið af hæfileikaríkum söngvaskáldum.

Tíbrá
Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleika formið.
Nú kynnir Salurinn nýja Tíbrárröð til leiks og má með sanni segja að starfsárið 2025 – 2026 verði glæsilegt, fjölbreytt og spennandi. Stór hópur tónlistarfólks í fremstu röð flytur litríka dagskrá þar sem hljómar splunkuný tónlist í bland við sígild meistaraverk og fáheyrðar perlur.
Allir tónleikar fara fram á sunnudögum klukkan 13:30 en á undan tónleikunum, klukkan 13:00, verður boðið upp á tónleikaspjall um viðfangsefni hverra tónleika.
50% afsláttur fæst af almennu miðaverði ef keypt er áskrift á alla tónleikana, aðeins 20.000 kr fyrir níu magnaða tónleika.
- 07.09.2025 – Að endalokum: Steiney Sigurðardóttir – selló, Herdís Mjöll Guðmundsdóttir – fiðla, Finn Schofield – klarínetta, Liam Kaplan – píanó.
- 05.10.2025 – Hennar hljómur: Guðný Charlott Harðardóttir – píanó og Vera Hjördís Matsdóttir – söngur
- 02.11.2025 – Far vel fley!: Umbra ensemble
- 23.11.2025 – Náttúruljóð: Þóra Kristín Gunnarsdóttir – píanó, Sigríður Hjördís Önnudóttir – þverflauta, Þórunn Ósk Marinósdóttir – víóla og Katie Buckley – Harpa.
- 11.01.2026 – Tónfölsunarverkstæðið: Halldór B. Arnarson, Gunnar Haraldsson, Elizabeth Sommers, Eliot X. Díos og Ásta S. Arnardóttir.
- 01.02.2026 – Dáland: Heiða Árnadóttir – söngur, Eiríkur Orri Ólafsson – trompet, Róberta Andersen – rafgítar.
- 01.03.2026 – Hugleiðingar um jökulvatn og ást: Dúplum Dúó og Caput
- 12.04.2026 – Allar leiðir liggja til Parísar: Peter Máté – píanó og Zeynep Ucbasaran – píanó.
- 03.06.2026 – Un dur og formerki: Herdís Anna – söngur og Bjarni Frímann – píanó.

Söngvaskáld
Tónleikaröðin Söngvaskáld hefur sitt þriðja starfsár í september en hún er röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila sín lög og segja frá tilurð þeirra. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríks tónlistarfólks sem semur og spilar eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi tónleikaröð beinir athygli að slíku listafólki, varpar ljósi á margvíslegar aðferðir tónlistarfólks við lagasmíðar og gefur þjóðþekktum lögum meiri dýpt.
Söngvaskáldin starfsárið ‘25-’26 eru Árný Margrét, Salka Valsdóttir, Bjarni Daníel og Daði Freyr.
Röðin hefur hlotið gífurlegar vinsældir en Söngvaskáld fyrri ára voru: Una Torfa, Unnsteinn Manuel, Klara Elías, Axel Flóvent, Hildur, JóiPé & Króli, JFDR, gugusar, Emmsjé Gauti og Bríet.
Almennt miðaverð á tónleika hjá Söngvaskáldum er 7.500 kr. en boðið verður upp á 20% afslátt yfir sumarið þar sem miðinn fæst á 6.000 kr.

Af fingrum fram
Hin lífsseiga spjalltónleikaröð Jóns Ólafssonar, Af fingrum fram, heldur ótrauð áfram inn í sextánda starfsvetur sinn í Salnum og eru gestirnir ekki af verri endanum. Enginn annar en Ari Eldjárn ríður á vaðið 2.október næstkomandi en í kjölfarið fylgja Björn Jörundur 16.október og Pálmi Gunnarsson 30.október. Selma og Hansa mæta síðan saman til Jóns þann 13.nóvember en búast má við diskójólastemningu þann 27.nóvember þegar þau einu sönnu Helga Möller og Jóhann Helgason, betur þekkt sem Þú & ég, stíga á svið. Á nýju ári ríður Katrín Halldóra á vaðið þann 29.janúar en Sigurður Guðmundsson fylgir fljótt eftir 19.febrúar. Kársnesbúinn sjálfur Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bogomil Font, mun svo fylla Salinn með suðrænni vorstemningu þann 12.mars og hjónin Saga Garðars og Snorri Helga slá svo botninn í röðina þann 26.mars.
Almennt miðaverð á Af fingrum fram er 8.900 kr. en röðin verður á forsöluafslætti á 7.500 kr. í allt sumar en hægt verður að næla í miða á þessu sérstaka verði út 10.ágúst 2025.