02. sep 14:00 – 14:30

Ævintýrastuð með Þresti Leó og Góa

Leikararnir Þröstur Leó og Gói ætla að bjóða í stuðveislu í Salnum. Þar munu þeir opna stóru ævintýrabókina og hver veit nema allt verði vitlaust…eða rétt. Það kemur í ljós.

Sýningin er þannig upp byggð að list leikarans fær að njóta sín. Leikmynd og búningar af skornum skammti og ímyndunaraflið nýtt til hins ýtrasta hjá bæði leikurum og áhorfendum. Þeir sýna okkur hvernig hægt er að búa til sýningu í hvaða rými sem er.

Sýningin tekur rúman hálftíma í flutningi og lofum við miklu stuði og fjöri. Tónlist, leikur og dans.

2. september kl. 14.00 – UPPSELT
2. september kl. 15.30 – Aukasýning

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Til að tryggja sér sæti er hægt að nálgast miða hér

Dagsetningar

02. sep

14:00 ~ 14:30

02. sep

15:30 ~ 16:00

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira