12. apr 13:30

Allar leiðir liggja til Parísar

Salurinn
3.900 - 4500 kr.

París hefur sögulega alltaf verið vagga byltinga en varð á fyrri hluta 20. aldar miðstöð lista og menningar. Fjöldi listrænna hreyfinga fæddist þar, götur og kaffihús borgarinnar urðu goðsagnakenndir samkomustaðir listamanna.

Zeynep Ücbasaran og Peter Máté hafa unnið að „Allar leiðir liggja til Parísar: Tónlist fyrir tvö píanó“ síðustu fjögur ár. Verkefnið inniheldur tónsmíðar eftir tónskáld sem bjuggu í París, lærðu þar og voru djúpt innblásin af menningarhefðum frönsku höfuðborgarinnar.

Zeynep og Peter bjóða upp á litríka efnisskrá með tónverkum fyrir tvö píanó sem sjaldan heyrast á tónleikapöllum. Tónleikarnir þeirra veita innsýn í fjölbreyttan stílheim sem einkennir tónlist Parísar á 20. öld. Hér má heyra síðrómantík Skrjabíns og Enescu, impressjónisma Ravels, yndisþokka tónlistar „Les Six“-hópsins sem og þjóðlega eða djasskennda danstónlist Casadesus og  Françaix.

Dagskráin „Allar leiðir liggja til Parísar“ hefur þegar hlotið góðar viðtökur hjá áhorfendum á Ítalíu og í Tyrklandi, við höfum einnig fengið boð í útvarpsstúdíó tyrkneska ríkisútvarpsins í Ankara í lifandi flutning og viðtal.

Við fögnum því að geta kynnt þessi áhugaverðu verk á Íslandi.

Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.

Deildu þessum viðburði

01. feb / kl. 13:30

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira