26. feb 20:00

Amor & Asninn

Örn Árnason og Jónas Þórir flytja lög Sigfúsar Halldórssonar.
4.900 - 5400 kr.

Í byrjun árs stóðu Örn Árnason og Jónas Þórir fyrir söngskemmtun í Salnum þar sem eldri borgurum í Kópavogi var boðið að hlýða á lög Sigfúsar Halldórssonar. Viðtökurnar voru vægast sagt góðar, því hafa þeir félagarnir ákveðið að endurtaka leikinn.  

Lög Sigfúsar verða aldrei of oft sungin. Hver smellurinn á fætur öðrum úr smiðju hans hafa fest sig í sessi sem dægurlög sem bæði ungir sem gamlir þekkja og vekja með okkur góðar minningar sem gott er að orna sér við. Lögin þekkja hvert mannsbarn á heldra róli og nýtur að syngja. Stiklað verður á stóru hjá Sigfúsi í tali og tónum og að sjálfsögðu munu allir syngja saman í lok dagskrárinnar.

FRAM KOMA

Örn Árnason

Leikari og söngvari

Jónas Þórir Þórisson

Organisti og píanóleikari

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira