14. jún 20:00

Bernskubrek í Kópavogi

3.500 - 4.000 kr.

Marteinn rifjar upp sprell og prakkarastrik Kópavogsæskunnar á öldinni sem leið með myndbrotum og spjalli.

Sögurnar og myndefnið snertir á fjöldamörgum málum:

Samskipti unglinga við herinn á stríðsárunum.
Bræður byggðu fyrsta íþróttavöllinn.
Lögreglan í Hafnarfirði handtekur unglinga í félagsmiðstöð.
Fimm drengir í sjávarháska.
Uppskeruhátíð í Agnarögn.
Vinnuskóli Kópavogs um 1980.
Kóparokk 1986.
Baráttan milli austurbæjar og vesturbæjar.
Skiptistöðin.
Tómstundaklúbbar í Víghólaskóla og stuttmyndagerð í Þinghólsskóla um 1980.
Breiðabliksstúlkur frumherjar í kvennafótbolta.
Erfið skráning fyrir Augnablik.
Skop í Skólahljómsveit Kópavogs.
Koddaslagur á Hlíðargarðshátíð.  
Pönkganga um Hamraborg.


Á þessum árum var lausaganga barna sko ekki tiltökumál!

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira