13. jún 17:00 – 18:00

Bogomil Font og hljómsveit | Sumarjazz í Salnum

Bogomil Font býður til tónleika í forsal Salarins í tónleikaröðinni Sumarjazz í Salnum. Hljómsveitina skipa Bogomil Font, söngur og slagverk, Einar Scheving á trommur, Jóel Pálsson á saxófón, Pálmi Sigurhjartarson, píanó og Birgir Steinn Theodórsson á bassa.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir. Léttar veitingar til sölu.

Sumarjazz í Salnum sumarið 2024

13. júní: Bogomil Font og hljómsveit
20. júní: Ingibjörg Turchi og hljómsveit
27. júní: MOVE, kvartett Óskars Guðjónssonar
4. júlí: Tríó Kristjönu Stefánsdóttur
11. júlí: Kvartett Edgars Rugajs
18. júlí: Los Bomboneros

Sumarjazz í Salnum er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

Deildu þessum viðburði

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira