25. sep 20:00

BREK – Ný spor í slóð, útgáfutónleikar

Salurinn
Í tilefni af útgáfu plötunnar verða haldnir veglegir útgáfutónleikar í Salnum í Kópavogi föstudaginn 25. september þar sem nýja platan, Ný spor í slóð, verður leikin í heild sinni ásamt eldra efni.
4.900-6.900 kr.

Hljómsveitin BREK hefur verið starfandi frá árinu 2018 og leikur alþýðuskotna tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, m.a. þjóðlagatónlist, jazzi og poppi. 

Sveitina skipa þau Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Sigmar Þór Matthíasson kontrabassaleikari og Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari.

Öll eru meðlimir sveitarinnar með ólíkan bakgrunn í tónlist þar sem þessi mismunandi áhrif, jazz, klassíkur, bluegrass, söngtónlistar og popptónlistar, í bland mynda hinn sérstaka hljóðheim og stíl hljómsveitarinnar BREK. 

Eftir að hafa hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu gefur BREK nú út sína aðra plötu í fullri lengd. Platan inniheldur 11 ný lög sem samin voru á árunum 2021 til 2025. Á plötunni nýtur Brek liðsinnis trommuleikarans Eriks Qvick í nokrum lögum auk strengjakvartetts skipuðum þeim Þórunni Ósk Marinósdóttur, Sigurði B. Gunnarssyni, Gunnhildi Daðadóttur og Sólveigu Steinþórsdóttur.

Í tilefni af útgáfu plötunnar verða haldnir veglegir útgáfutónleikar í Salnum í Kópavogi föstudaginn 25. september þar sem nýja platan, Ný spor í slóð, verður leikin í heild sinni ásamt eldra efni.

Húsið opnar kl. 19:00

og tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:00.

Deildu þessum viðburði

09. sep / kl. 20:00

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

09. sep / kl. 20:00

Sjá meira