John Dowland (1563–1626) og Henry Purcell (1659–1695) voru áhrifamikil ensk tónskáld sem voru meistarar í að semja flóknar, fallegar og tilfinningaríkar laglínur. Heiða Árnadóttir, söngkona, Eiríkur Orri Ólafsson, trompetleikari, og Róberta Andersen, rafgítarleikari, ætla að flétta þessar laglínur inn í nýjan hljóðheim og sameina það gamla og nýja í fallegu tónlistar ferðalagi. Þau munu endurskapa þessi sígildu verk á þann hátt að þau kalli fram nýja og óvænta upplifun.

Heiða Árnadóttir söngkona hefur á ferli sínum lagt áherslu á flutning nútímatónlistar, auk þjóðlagatónlistar, djass og tilraunatónlistar . Heiða lauk meistaranámi frá Tónlistarháskólanum í Haag í Hollandi árið 2004. Ásamt fjölda tónleika á Íslandi, þar sem hún hefur meðal annars frumflutt verk með Ensemble Adapter og Caput, hefur Heiða einnig komið fram í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Indlandi, Svíþjóð og Danmörku. Hún hefur flutt verk á Norrænum músíkdögum, Iceland Airwaves, Sumartónleikum í Skálholti, Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði, Jazzhátíð Reykjavíkur og ýmsum hátíðum erlendis líkt og á hátíðartónleikum á heimstónlistarhátíðinni WOMEX í Kaupmannahöfn.
Heiða var staðarlistamaður Myrkra músíkdaga árin 2020-2023 og hefur tvisvar sinnum verið tilnefnd sem söngkona ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum í flokki klassískrar tónlistar. . Einnig vann hún Grímuverðlaunin sem söngvari ársins 2024 fyrir ljóðsöguna Mörsugur.
Heiða er lagahöfundur, textaskáld og söngkona í hljómsveitinni Mógil sem gefið hafa út fjórar plötur. Platan þeirra Ró, sem gefin var út af Radical Duke í Belgíu, var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2008 og var nýjasta plata þeirra, Aðventa, gefin út af hinu virta útgáfufyrirtæki Winter and Winter í Þýskalandi.

Róberta Andersen fæddist á Akureyri 1978. Hún hefur áberandi hljóðfæraleikari á jaðarsenu íslenskrar jazz og pop tónlistar um árabil auk þess að hafa starfað á meginlandi Evrópu í Sviss og þýskalandi. Róberta vakti fyrst athygli sem spunagítarleikari og kom hún oft fram með meðliumum úr hljómsveitinni Flís sem þá var skipuð Davíð Þór Jónssyni, Helga Svavari Helgasyni og Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni, en ásamt þeim lék hún við fjölmörg tækifæri jazz eða spunatónlist við góðan orðstýr. Róberta fluttist síðar til Zurich og lék þar með tríóinu Tread sem kom víða fram í Sviss á árunum 2003 – 2005 þar til hún flutti aftur til Íslands.
Auk þess að spila spuna og jazztónlsit vakti hún einnig athygli poptónlistarmanna og vann náið með Benna Hemm Hemm að hans fyrtsu plötum en platan Benni Hemm Hemm hlaut íslensku tónlistarverðlaunin 2005 sem plata ársins. Róberta kom auk þess fram með fjölmörgum listamönnum (Ólöfu Arnalds, Óbó, Borgo, Bogomil Font of fleirum) á tónleikum víðsvegar um Evrópu og N-Ameríku og í sjónvarpi.
Róberta samdi einnig tónlist fyrir dans og vann meðal annars með Íslenska Dansflokknum að verkinu Skekkja (2008) eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur. Róberta varð meðlimur í hljómsveitinni Múm frá árinu 2008 og hefur starfað með hljómsveitinni síðan auk þess að ferðast með Múm um heiminn.
Í seinni tíð hefur Róberta einbeitt sér aftur af spuna og jazztónlist auk þess að semja tónlist fyrir sjónvarp. Róberta hefur ásamt þeim Eiríki Orra Ólafssyni og Magnúsi Tryggvasyni Elíassen starfrækt tríóð Hist og frá árinu 2017. Hist og spilar blöndu af raf -, spuna og jazztónlist og hefur hljómsveitin gefið út 3 breiðskífur og hlotið 6 tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna. Reykjavík Records gaf einnig út tónlist úr myndinni „Einstök börn“ eftir Róbertu.

Eiríkur Orri Ólafsson er fæddur í Reykjavík 1980 og hóf trompetnám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur sjö ára gamall. Hann hefur numið jazztrompetleik við Tónlistarskóla FÍH, Conservatorium van Amsterdam og Koninklijk Conservatorium í Den Haag. Eiríkur hefur verið á meðal virkustu tónlistarmanna landsins á sviði jazz og tilraunakenndar tónlistar síðastliðin ár. Sem djasstónlistarmaður hefur Eiríkur komið fram með helstu djassleikurum landsins, þar á meðal Jóel Pálssyni, Skúla Sverrissyni, Hilmari Jenssyni, Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni, Davíð Þór Jónssyni, Mógil og fleirum. Hann hefur einnig komið fram með evrópsku síðdjasssveitinni Carate Urio Orchestra. Hann er meðlimur í Stórsveit Reykjavíkur og kemur gjarnan fram í einleikshlutverki með gestastjórnendum á borð við Mariu Schneider og Katherine Windfeld.
Eiríkur á að baki hátt yfir sex hundruð tónleika á erlendri grundu með hljómsveitum eins og Sigur Rós, múm, Kiru Kiru, Stórsveit Nix Noltes og Seabear. Hann hefur komið fram á plötum með áðurnefndum hljómsveitum og fleirum til, þar á meðal plötum með Ólöfu
Arnalds, FM Belfast, Bogomil Font, Amiinu, Emiliönu Torrini og Davíð Þór Jónssyni. Eiríkur var hljómsveitarstjóri fyrir Sigur Rós á tónleikaferðalagi þeirra fyrir plöturnar Valtara og Kveik á árunum 2012-2013. Hann annaðist útsetningar fyrir strengi og brass ásamt því að spila á trompet. Önnur útsetningarverkefni hafa verið fyrir múm og Dutch Radio Kammerorkester á Holland Festival, múm og Sinfonia Cracovia á Sacrum Profanum hátíðinni ásamt ýmsum verkefnum fyrir Kiru Kiru og Sin Fang. Árið 2018 stofnaði Eiríkur tríóið hist og ásamt Róbertu Andersen og Magnúsi Trygvasyni Eliassen. Tríóið á að baki þrjár plötur, Days of Tundra (2019), hits of (2020) og Holy Ghost Of (2023). Allar hlutu þær mikið lof og hefur hljómsveitin samtals landað átta tilnefningum til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í djassflokki, sem og sæti á Kraumslistanum 2019 og 2020 og“Spuni Ársins” hjá Morgunblaðinu.
Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall klukkan 13:00. Aðgangur á spjallið er ókeypis og öll velkomin.