Blítt og létt hópurinn úr Eyjum
Hefur þig dreymt um að syngja í Salnum í Kópavogi?
Nú er tækifærið, Blítt og létt hópurinn verður með Eyjakvöld, þar sem að textum er varpað á vegg og allir syngja með. Upplifðu ekta Brekkusöngsstemningu með fjölskyldu og vinum og kyrjaðu Eyjalögin með íslenskum þjóðlögum í bland. Það verða valsar, tangó, kántrý og rokk, semsagt eitthvað fyrir alla.
Þátttakendur frá Blítt og létt:
Magnús R. Einarsson Gítar
Sigurmundur G. Einarsson Gítar
Kristinn Jónsson Bassi
Grímur Þór Gíslason Trommur
Matthías Harðarson Saxófónn
Unnur Ólafsdóttir Söngur
Þórarinn Ólason Söngur
Ólafur Týr Guðjónsson Söngur
Hörður Þór Harðarson Hljóðmaður
Davíð í Tölvun Tæknimaður