20. apr 20:00 – 22:00

Eyjapistlarnir ógleymanlegu | Fyrir Grindvíkinga

Gísli Helgason og Eyjalögin
0 - 6.000 kr.

Föruneyti GH og Kópavogsbær bjóða Grindvíkingum til ókeypis tónleika laugardaginn 20. apríl í Salnum Kópavogi kl. 20.00.

Flutt verður tónleikadagskráin Eyjapistlarnir ógleymanlegu, Gísli Helgason og Eyjalögin.

Þessi dagskrá var flutt á Goslokahátíðinni í Vestmannaeyjum síðastliðið sumar og vakti fádæma athygli. Komust færri að en vildu. Dagskráin var svo endurtekin í Salnum, Kópavogi, í september síðastliðnum.

Á tónleikunum verða flutt ýmis Eyjalög og mega allir sem vilja gjarnan syngja með. Brot úr Eyjapistlunum (RÚV 1973) verða spiluð milli laga og sagðar ýmsar skemmtisögur frá gostímabilinu.

Auk Gísla koma fram Herdís Hallvarðsdóttir, Þórarinn Ólason, Magnús R. Einarsson, Hafsteinn Guðfinnsson, Sigurmundur G. Einarsson Unnur Ólafsdóttir og Grímur Þór Gíslason.

FRÍTT ER Á TÓNLEIKANA FYRIR GRINDVÍKINGA
En það þarf að ná sér í miða á Tix, á meðan þeir endast.

Ef aðrir en Grindvíkingar vilja mæta á tónleikana er hægt að kaupa miða á 6.000 kr., allur ágóði rennur beint til Grindvíkinga.

FRAM KOMA

Gísli Helgason

Herdís Hallvarðsdóttir

Þórarinn Ólason

Magnús R. Einarsson

Hafsteinn Guðfinnsson

Sigurmundur G. Einarsson

Unnur Ólafsdóttir

Grímur Þór Gíslason

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira