Flytjendur
Trommur – Andri Eyfjörð
Bassi – Hjálmar Karl Guðnason
Píanó – Jón Ingvi Seljeseth
Gítar – Fannar Sigurðsson
Saxófónn – Guðjón Steinn Skúlason
Söngur – Rebekka Blöndal
Fannar Sigurðsson
B. Mus. Ed. Rytmískt söng- og hljóðfærakennsla
Fannar hóf nám í klassískum gítarleik tíu ára gamall við T ónlistarskóla Kópavogs. Á menntaskólaárunum heillaðist hann af blús- og jazztónlist og að lokinni menntaskólagöngu gekk hann í Tónlistarskóla FÍH og síðar MÍT, þar sem hann útskrifaðist með framhaldspróf í rytmískum gítarleik árið 2022. Eftir útskrift flutti Fannar til Þýskalands og lærði skólaárið 2022–2023 við Hochschule für Musik und Tanz í Köln undir leiðsögn Frank Haunschild.
Fannar hefur starfað sem tónlistarkennari síðastliðin tvö ár, ásamt því að tónlistarstýra og spila í söngleiknum Leg, útskriftarverki leikaranema Listaháskólans 2025, sem og söngleiknum Kabarett í Þjóðleikhúskjallaranum vorið 2026.





