Jólatónleikar Kristínar Stefánsdóttur verða haldnir í fimmta sinn í Salnum í Kópavogi þann 11. desember kl. 20. Tónleikarnir hafa verið rómaðir fyrir hlýlega og notalega jólastemmingu svo hér er einstök leið til að komast í jólaskapið.
Sígildar jólaperlur munu hljóma í bland við nýrri lög í flutningi úrvalstónlistarfólks.
Sérstakur gestur er Þór Breiðfjörð.
Hljómsveit og raddir:
Hlynur Þór Agnarsson, píanó, útsetningar og raddir
Ásgeir Ásgeirsson, gítar,
Róbert Þórhallsson, bassi
Ólafur Hólm Einarsson, trommur
Haukur Gröndal, saxafónn
Einar Jónsson, básúna
Sönghópurinn Raddadda
Elísabet Ólafsdóttir, raddir
Gógó, raddir