Tónleikaspjall í tali og tónum þar sem veitt verður innsýn í efnisskrá Tíbrártónleika dagsins. Hægt verður að kaupa ljúffengar veitingar frá Krónikunni á meðan spjallið stendur yfir en umsjón með viðburðinum hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Á Tíbrártónleikum dagsins mun CAPUT flytja tvö mögnuð verk eftir John A. Speight, Djáknann frá Myrká og Klukkukvæði. Með CAPUT koma fram þau Hildigunnur Einarsdóttir og Arnar Jónsson.
Ókeypis er á tónleikaspjallið sem stendur yfir frá 12:30 – 13:00. Húsið verður opnað klukkan 12:00. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.