01. okt 20:30

Una Torfa | Af fingrum fram

Salurinn
Forsala er hafin!
7.900 - 9.900 kr.

Tónlistarkonan vinsæla Una Torfa verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 1. október, 2026! 

Fyrir nokkrum árum sló Una rækilega í gegn með frábærum og grípandi popplögum sínum og íslenska þjóðin var meir en til í þessa músík.  Það er óhætt að líkja ferlinum hingað til sem sigurför.  Hún skrifaði söngleikinn Storm ásamt Unni Ösp Stefánsdóttur auk þess að semja tónlistina fyrir verkið. Auk tónlistar Unu er aldrei að vita nema hægt verði að véla hana í eitthvað fleira skemmtilegt. Hvur veit?


Tónleikatöðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem skemmtileg og einlæg samtöl, sögur úr tónlistarlífnu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka og eftirminnilega kvöldstund. 

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna. 

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi: 

/ 2026 /

  • 17. september 2026: Halli og Gói
  • 1. október 2026: Una Torfa
  • 15. október 2026: Jón Jónsson
  • 5. nóvember 2026: Jónas Sig
  • 26. nóvember 2026: Ragga Gísla 

/ 2027 /

  • 21. janúar 2027: Mugison
  • 11. febrúar 2027: Bríet
  • 11. mars 2027: Daníel Ágúst
  • 8. apríl 2027: Ólöf Arnalds
  • 6. maí 2027: Sóli Hólm

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á