21. jan 20:30

Mugison| Af fingrum fram

Forsala er hafin!
7.900 - 9.900 kr.

Vestfirðingurinn og tónlistarmaðurinn góðkunni Mugison verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum 27. janúar, 2027.

Örn Elías Guðmundsson er ákaflega ástsæll á meðal Íslendinga enda fáir verið duglegri að heimsækja landsbyggðina.  Hann kallar sig Mugison og er alveg sér á parti á íslenskri tónlistarsenu.  Hljómplatan Haglél tryggði honum heiðurssæti og lög eins og Stingum af eru orðin hluti af íslenskri þjóðarsál. Það er óhætt að segja að hér verði um að ræða ansi gott kvöld!



Tónleikatöðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem skemmtileg og einlæg samtöl, sögur úr tónlistarlífnu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka og eftirminnilega kvöldstund. 

Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í einlægt spjall og góða tóna. 

Gestir Af fingrum fram tónleikaárið 2026-2027 eru eftirfarandi: 

/ 2026 /

  • 17. september 2026: Halli og Gói
  • 1. október 2026: Una Torfa
  • 15. október 2026: Jón Jónsson
  • 5. nóvember 2026: Jónas Sig
  • 26. nóvember 2026: Ragga Gísla 

/ 2027 /

  • 21. janúar 2027: Mugison
  • 11. febrúar 2027: Bríet
  • 11. mars 2027: Daníel Ágúst
  • 8. apríl 2027: Ólöf Arnalds
  • 6. maí 2027: Sóli Hólm

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á