03. apr 20:00

Guðrún Gunnars – Skandinavia

Salurinn
6.500-7.500 kr.

Guðrún Gunnars söngkona býður til tónleika í Salnum ásamt 7 manna hljómsveit undir stjórn Ásgeirs Ásgeirssonar gítarleikara.  Hópurinn mun flytja lög eftir skandinavísk söngvaskáld, lög sem við heyrum sjaldan eða aldrei á öldum ljósvakanna hér heima og eru sum þekkt,önnur óþekkt. 

Lög Bremnes systkinana norsku,Kari,Lars og Ola,verða fyrirferðarmikil en Cornelis Vreeswijk fær að fljóta með og  fleiri lagahöfundar.  

Textarnir eru eftir Aðalstein Ásberg skáld og lögin eru sum hver af sólóplötum Guðrúnar en þjóðlaga og vísnatónlist hefur alltaf staðið hjarta söngkonunnar nærri eins og heyra má á þeim 6 sólóplötum sem komið hafa út með henni. 

Þessi tónlist er hugljúf og textarnir hans Aðalsteins frábærir.  Komdu og njóttu þess að fara með Guðrúnu Gunnars og hljómsveit í einstakt tónlistarferðalag. 

Hljómsveitina skipa: 

Ásgeir Ásgeirsson gítar og hljómsveitarstjórn 

Gunnar Gunnarsson píanó og harmónikka 

Þorgrímur Jónsson bassi 

Hannes Friðbjarnarson slagverk 

Stefán Örn Gunnlaugsson hljómborð,gítar og raddir 

Gísli Magna raddir 

Hafsteinn Þórólfsson raddir 

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira