29. apr 13:30

Gunnar Árni Hreiðarsson

Flytjendur
Gunnar Árni Hreiðarsson

Gunnar Árni Hreiðarsson
BA Nýmiðlatónsmíðar

Gunnar Árni Hreiðarsson hefur frá unga aldri haft áhuga á raftónlist og hóf að semja eigin tónlist um fermingaraldur. Árið 2018 vann hann að tónlist af fullum krafti, en það ár varð honum sérstaklega lærdómsríkt og festi áhugann enn frekar í sessi. Gunnar hefur í rúman áratug lagt áherslu á að læra sem mest um tónlistarsköpun og aðferðir tengdar raf- og nýmiðlatónlist. Hann hefur prófað sig áfram í ólíkum stílum.

Árið 2023 hóf hann nám í nýmiðlatónsmíðum við Listaháskóla Íslands þar sem hann mun útskrifast með bakkalárgráðu í vor. Í náminu hefur Gunnar dýpkað þekkingu sína á hljóðvinnslu, raftónsmíðum og skapandi aðferðum tónsmíða.

Útskriftarverk

Gunnar er að mestu sjálflærður með mikla ástríðu fyrir danstónlist.

Með þessu verki vill hann leggja áherslu á þá tónlistarstíla sem hann brennur mest fyrir sem og sameina þá við það sem hann hefur tileinkað sér í náminu.

LOKAVERK 26

Portraitmyndir af útskriftarnemendum 2026 Tónlist

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

Sjá meira