04. mar 20:30

Halli, Jón og Gói

Söngur, sögur og almennt rugl!
5.300 - 5.900 kr.

Eftir tvo vel heppnaða tónleika ætla félagarnir þrír að endurtaka leikinn.

Lögin og sögurnar úr leikhúsunum flutt af þeim Halla og Góa við undirleik Jóns Ólafssonar. Fjör, dramatík, bull og allt þar á milli!

Leikararnir Halli og Gói hófu að syngja lögin úr leikhúsinu norðan heiða árið 2007 þegar þeir störfuðu hjá Leikfélagi Akureyrar. Öll eru lögin úr söngleikjum eða leikritum sem þeir hafa tekið þátt í eða dreymir um að taka þátt í. Þeir syngja og segja sögur á milli laga, sannar og ósannar. Þarna mun fjörið, dramatíkin og bullið ráða ríkjum. Þeim til aðstoðar er Jón Ólafsson, tónlistarmaður.

FRAM KOMA

Guðjón Davíð Karlsson

Leikari

Hallgrímur Ólafsson

Leikari

Jón Ólafsson

Píanisti

Deildu þessum viðburði

Sjá meira

ÞÚ GÆTIR HAFT ÁHUGA Á

12. maí / kl. 13:30

24. maí / kl. 20:00

Sjá meira